Fjöldi nemenda í tónlistarskólum í Reykjavík, eftir tónlistarskólum

Gagnapakkinn inniheldur fjölda nemenda í tónlistarskólum í Reykjavík, eftir tónlistarskólum. Gögnin eru frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2003-2016.

Hver lína táknar fjölda nemenda í tónlistarskólum í Reykjavík eftir tegund náms fyrir hvern tónlistarskóla á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár og annar dálkur inniheldur tónlistarskóla (26 tónlistarskólar í heildina, t.d. Gítarskóli Íslands, Tónskóli Hörpunnar og Söngskóli Sigurðar Demetz). Þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda nemenda í tónlistaskólum í Reykjavík, eftir tónlistarskólum og fjórði dálkur inniheldur fjölda Reykvískra nemenda. Fimmti til níundi dálkur inniheldur fjölda nemenda eftir stigi náms (fornám, grunnnám, miðnám - hljófæri, miðnám - söngur og framhaldsnám).

Skýringar:
Fjöldi nemenda 1 október ár hvert.
Nemendafjöldi er fjöldi nemendagilda, nemandi skráður í tvær námsgreinar er talinn tvisvar.
Tónskóli Þjóðkirkjunnar: Reykjavíkurborg annast útdeilingu fjármagns úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til Tónskóla þjóðkirkjunnar.
Nemendur í öðrum sveitarfélögum 3: Um er að ræða reykvíska nemendur sem stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum en Reykjavík.
Samstarfsverkefni grunn- & tónl.skóla 5: Um er að ræða sérverkefnið Músíkalskt par.
Árin 2003, 2004 og 2008: Fjöldi nemenda á miðnámi ekki sundurliðaður í hljóðfæra og söng nám.

Data and Resources

Additional Info

Field Value
Last Updated June 14, 2023, 16:47 (UTC)
Created May 30, 2023, 13:45 (UTC)