Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur og hlutfall um skólasókn árganga í Reykjavík, á höfuborgarsvæðinu og landinu öllu eftir kyni. Gögnin eru frá Hagstofu Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1999-2016.




Hver lína táknar fjölda og hlutfall nemenda sem sækja skóla fyrir hvert svæði, hvern aldur og hvert kyn á ákveðnu ári.




Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í höfuðborgarsvæðið utan Reykjavíkur, Reykjavík og alls) og þriðji dálkur inniheldur aldur (16-29 ára). Fjórði dálkur inniheldur kyn (sem skiptist upp í karlar, konur og alls) og fimmti dálkur inniheldur fjölda nemenda í skóla. Sjötti dálkur inniheldur hlutfall nemenda í skóla - þar sem 0,894 er 89,4% skólasókn.




Skýringar:


Fólk í námi innanlands frá og með fyrsta ári framhaldsskólastigs með lögheimili innanlands. Skólasókn reiknast sem hlutfall nemenda af mannfjölda í viðkomandi aldursflokki og með lögheimili í viðkomandi landshluta 1. desember ár hvert.