Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur algengustu þjóðerni nemenda í grunnskólum Reykjavíkur sem fengu íslenskukennslu sem annað tungumál. Gögnin eru frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2003-2015.




Hver lína táknar fjölda nemenda eftir þjóðerni sem fengu kennslu í íslensku sem annað tungumál fyrir hvert skólaár á ákveðnu ári.




Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur skólaár (t.d. 2003-2004) og þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda nemenda sem fengu íslenskukennslu. Fjórði upp í 24. dálk innihalda fjölda nemenda sem fengu íslenskukennslu sem annað tungumál fyrir sérhvert þjóðerni (t.d. Albanía, Japan, Noregur og Serbía).


Skýringar:


Miðað er við 6 nemendur eða fleiri af sama þjóðerni.


Þessar tölur segja einungis til um fjölda nemenda sem flokkast undir sérstakt viðmið um fjárframlög á nemanda af erlendum uppruna í grunnskólum Reykjavíkur. Nemendur af erlendum uppruna eru mun fleiri.