Þú ert að skoða gamla útgáfu af þessum gagnapakka. Smelltu hér til að skoða nýjustu útgáfuna.

Virkur ferðamáti og notkun almenningssamgangna

Gagnapakkinn inniheldur hlutfall fullorðinna sem nota virkan ferðamáta og meðalfjölda ferða á íbúa sem nota almenningssamgöngur í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2016-2018.

Virkur ferðamáti fullorðinna: Hlutfall þeirra sem hjóla eða ganga 3x í viku eða oftar til vinnu eða skóla. Notkun almenningssamgangna: Meðalfjöldi ferða á íbúa á ári.

Hver lína í gagnaskránum táknar hlutfall fullorðinna sem nota virkan ferðamáta og meðalfjölda íbúa sem nota almenningssamgöngur fyrir hvert svæði á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji dálkur inniheldur hlutfall fullorðinna sem nota virkan ferðamáta - þar sem 0,243 er 24,3%. Fjórði dálkur er meðalfjöldi ferða á íbúa á ári sem nota almenningssamgöngur.

Gögn og gagnaskrár

Viðbótarupplýsingar

Reitur Gildi
Síðast uppfært júní 6, 2023, 14:58 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 13:59 (UTC)