Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um fjölda samninga og verð íbúða í sérbýli í Reykjavík eftir fjölda fermetra. Gögnin eru frá Þjóðskrá Íslands og Hagstofu Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1990-2017.




Hver lína táknar fjölda samninga og staðgreiðsluverð (á fermetra) íbúða í sérbýli í Reykjavík fyrir mismunandi fjölda fermetra á ákveðnu ári.




Skýringar:


Útreikningar fasteignaverðs byggja á völdu úrtaki kaupsamninga sem gerðir voru á viðkomandi tímabili. Samningar milli skyldra aðila eða þar sem upplýsingar eru ófullkomnar eru ekki teknir með í úrtakið. Fjöldi samninga vísar til fjölda kaupsamninga sem falla í þetta úrtak. Staðgreiðsluverð merkir kaupverð ef það væri allt greitt út í hönd á kaupdegi, reiknað út frá greiðslutilhögun og yfirteknum lánum.


Fjöldi fermetra: Á föstu verði 2013 - miðað við byggingarvísitölu.