Gagnapakkinn inniheldur fjölda fatlaðara barna á frístundaheimilum í Reykjavík, eftir frístundaheimilum. Gögnin eru frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2011-2016.




Hver lína táknar fjölda fatlaðra barna á frístundaheimilum í Reykjavík fyrir sérhvert frístundaheimili á ákveðnu ári.




Fyrsti dálkurinn inniheldur ár og annar dálkur inniheldur heildarfjölda fatlaðra barna á frístundaheimilum í Reykjavík. Þriðji til áttundi dálkur innihalda fjölda fatlaðra barna á sérhverju frístundaheimili í Reykjavík (Askja, Frístundaklúbburinn Garður, Frístundaklúbburinn Hellirinn, Frístundaklúbburinn Hlíð, Frístundaklúbburinn Hofið og Frístundaklúbburinn Höllin).




Skýringar:


Fjöldi nemenda 1 október ár hvert.