Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um fjölda samninga og verð íbúða í fjölbýli í Reykjavík eftir herbergisfjölda. Gögnin eru frá Þjóðskrá Íslands og Hagstofu Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1990-2017.




Hver lína táknar fjölda samninga og staðgreiðsluverð (á fermetra) íbúða í fjölbýli í Reykjavík fyrir hvern herbergisfjölda á ákveðnu ári.




Fyrsti dálkurinn inniheldur ár og annar dálkur inniheldur herbergisfjölda (2 herbergja, 3 herbergja, 4 herbergja, 5 herbergja ofl., fjölbýli alls og á föstu verði 2013). Þriðji dálkur inniheldur fjölda samninga og fjórði dálkur inniheldur staðgreiðsluverð íbúða (á fermetra).




Skýringar:


Útreikningar fasteignaverðs byggja á völdu úrtaki kaupsamninga sem gerðir voru á viðkomandi tímabili. Samningar milli skyldra aðila eða þar sem upplýsingar eru ófullkomnar eru ekki teknir með í úrtakið. Fjöldi samninga vísar til fjölda kaupsamninga sem falla í þetta úrtak.Staðgreiðsluverð merkir kaupverð ef það væri allt greitt út í hönd á kaupdegi, reiknað út frá greiðslutilhögun og yfirteknum lánum.


Herbergisfjöldi: Á föstu verði 2013 - miðað við byggingarvísitölu.