Gagnapakkinn inniheldur kynjahlutföll og fjölda á framboðslistum fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík. Gögnin eru frá Skrifstofu borgarstjórnar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2002-2018.




Hver lína í gagnaskránum táknar fjölda frambjóðenda og hlutfall frambjóðenda í borgarstjórnarkosningum fyrir hvert kyn og hvern flokk á ákveðnu ári.




Fyrsti dálkurinn inniheldur ár og annar dálkur inniheldur flokk og þriðji dálkur inniheldur kyn (sem skiptist upp í konur, karlar og samtals). Fjórði dálkur inniheldur fjölda frambjóðenda og fimmti dálkur inniheldur hlutfall frambjóðenda - þar sem 0,53 er 53%.