You're currently viewing an old version of this dataset. To see the current version, click here.

Kvíði og einmannaleiki ungmenna

Gagnapakkinn inniheldur hlutfall kvíðaeinkenna og einmannaleika grunnskólanema (í 8.-10. bekk) og framhaldsskólanema í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2016-2018.

Hver lína í gagnaskránum táknar hlutfall kvíðaeinkenna og einmannaleika grunnskólanema (í 8.-10. bekk) og framhaldsskólanema fyrir hvert svæði á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji flokkur inniheldur hlutfall kvíðaeinkenna grunnskólanema (8.-10. bekk) - þar sem 0,023 er 2,3% grunnskólanema upplifa kvíðaeinkenni. Fjórði dálkur inniheldur hlutfall grunnskólabarna (8.-10. bekkur) sem upplifa einmannaleika og fimmti dálkur inniheldur hlutfall einmannaleika hjá framhaldsskólanemum.

Heimild: Rannsóknir og greining. Könnun meðal grunnskóla- og framhaldsskólanema.
Skýringar: Meðaltalsskor kvíðaeinkenna. Hlutfall nemenda sem segjast oft hafa verið einmanna sl viku.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 7, 2023, 10:12 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 13:47 (UTC)