Gagnapakkinn inniheldur árlegar tölur um fjölda og hlutfall notenda á almennum leigumarkaði sem fengu sérstakar húsaleigubætur, skipt eftir þjónustumiðstöð og aldri. Hlutfallstalan sýnir fjölda notenda í tiltekinum aldurshóp sem brot af heildarfjölda notenda þess árs fyrir hverja þjónustumiðstöð. Þannig getum við sem dæmi séð að af öllum þeim á almennum leigumarkaði sem fengu sérstakar húsaleigubætur í Vesturbæ árið 2012 voru 0,8% (0,008) á aldrinum 18-19 ára.




Gögnin eru upprunnin hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, 2012-2016.