Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um kaldavatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu. Gögnin eru frá Orkuveitu Reykjavíkur. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1999-2016.




Hver lína táknar mannfjölda á vatnsveitusvæði, framleiðslu á köldu vatni (millj. m3) og fjölda kaldavatnsmæla á ákveðnu ári.




Skýringar:


Vatnsveitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur.


Orkuveita Reykjavíkur sér eftirfarandi sveitafélögum fyrir vatni: Reykjavík, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi, Akranesi, Borgarbyggð, Grundarfirði og Stykkishólmi.