You're currently viewing an old version of this dataset. To see the current version, click here.

Mannfjöldi í Reykjavík, höfuðborgarsvæðinu og á landinu öllu, meðaltal

Gagnapakkinn byggir á tölum frá Hagstofu Íslands um íbúafjölda á Íslandi frá 1901-2020. Í honum er að finna reiknað meðaltal íbúafjölda yfir 12 tíu ára tímabil og hlutfallsbreytingu í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og á landinu öllu. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll tímabilin, auk sér skráa fyrir hvert tímabil fyrir sig.

Hver lína í gagnaskránum táknar íbúafjölda og hlutfallsbreytingu íbúafjölda á milli tímabila á tilteknu tímabili fyrir tiltekið svæði.

Fyrsti dálkurinn inniheldur tímabil(skiptist í 12 tíu ára tímabil.Það fyrsta sem nær frá 1901-1910, það síðasta frá 2011-2020), annar inniheldur svæði(skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og allt landið), þriðji dálkur inniheldur íbúafjölda. Fjórði dálkur inniheldur hlutfallslega breytingu íbúafjölda á milli ára þar sem 0,563 er 56,3%.

Tölur fyrir árin 1901-1990 eru úr Hagskinnu.
Tölur um íbúa í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og á Íslandi 1901-1997, miðast við 1. desember ár hvert.
Tölur um íbúa í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og á Íslandi, 1998 og síðar miðast við 1. janúar ár hvert.
Tölur um íbúa Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins 1998-2012, miðast við sveitarfélagaskipan 1. janúar 2012.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 12:11 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 11:25 (UTC)