Gagnapakkinn inniheldur þátttökuhlutfall í íþróttastarfi í 5.-10. bekk og nýtingu frístundakorts í Reykjavík. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2016-2018.




Hver lína í gagnaskránum táknar þátttökuhlutfall í skipulögðu íþróttastarfi 1-3x í viku og hlutfall þeirra sem nýta frístundakortið í Reykjavík á ákveðnu ári.




Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur þátttökuhlutfall í íþróttastarfi (5.-7. bekkur) - þar sem 0,335 er 33,5% þátttaka. Þriðji dálkur inniheldur þátttökuhlutfall í íþróttastarfi (8.-10. bekkur) og fjórði dálkur inniheldur hlutfall á nýtingu frístundakorts - þar sem 0,779 er 77,9% nýting.