You're currently viewing an old version of this dataset. To see the current version, click here.

Húsaleigubætur eftir þjónustumiðstöðvum og fjölskyldugerð

Gagnapakkinn inniheldur árlegar tölur um fjölda og hlutfall notenda sem fengu húsaleigubætur, skipt eftir þjónustumiðstöð og fjölskyldugerð. Hlutfallstalan sýnir fjölda notenda í hverri fjölskyldugerð sem brot af heildarfjölda notenda þess árs og þjónustumiðstöðvar. Þannig getum við sem dæmi séð að af öllum sem fengu húsaleigubætur í Vesturbæ árið 2005 voru 23,9% (0,239) einhleypar konur.

Gögnin eru upprunnin hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, 2005-2016. Athugið að í gögnunum teljast Árbær og Breiðholt til sama hverfis árið 2005 (sömu tölur í báðum hverfum). Einnig skal tekið fram að öll árin 2005-2008 er ekki tölur um einstæða foreldra ekki sundurliðaðar (sömu tölur í bæði Einstæðar mæður og Einstæðir feður).

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 13:55 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 12:58 (UTC)