Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um starfsemi grunnskóla í Reykjavík. Gögnin eru frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2000-2017.
Hver lína táknar fjöldatölur um starfsemi grunnskóla í Reykjavík á ákveðnu ári.
Fyrsti dálkurinn inniheldur ár. Annar til 23. dálkur innihalda fjöldatölur um starfsemi grunnskóla í Reykjavík (t.d. fjölda grunnskóla í Reykjavík, fjölda nemenda í sérskólum Reykjavíkurborga, fjölda stöðugilda í grunnskólum, meðalfjölda nemenda í bekkjardeild/umsjónarhópi grunnskóla og fjölda færanlegra kennslustofa) og stærð húsnæðis (í fermetrum).
Skýringar:
Fjöldi nemenda 1. október ár hvert.
Heildarfjöldi stöðugilda grunnskólakennara/stjórnenda: Óháð starfsstað.