Gagnapakkinn inniheldur mánaðarlegan fjölda atvinnulausra á höfuðborgarsvæðinu eftir kyni og sveitarfélagi. Gögnin koma frá Vinnumálastofnun. Hér er hægt að skoða fjölda atvinnulausra karla og/eða kvenna fyrir hvern mánuð á árunum 2000 til 2019. Kyn gildi eru. "Karlar", "Konur", "Alls". Ekki eru upplýsingar í þessu gagnasetti um fjölda atvinnulausra kvára. Tölur eru frá lok hvers mánaðar.




Hver lína táknar fjölda atvinnulausra einstaklinga af ákveðnu kyni í ákveðnu sveitafélagi í ákveðnum mánuði.




Skýringar:


Frá og með júní 2006 eru tölurnar í þessu skjali miðaðar við sveitarfélög eins og þau voru í sveitarstjórnarkosningunum 2006 og eru upplýsingar aftur í tímann lagaðar að því. Eitthvað var um sameiningar sveitarfélaga yfir þau landshlutamörk sem notuð eru (gömlu kjördæmamörkin) og heildarfjöldi hvers landshluta er þvi annar en hann var, í samræmi við breytt mörk sveitarfélaganna. Upplýsingar um fjölda atvinnulausra eftir sveitarfélögum eins og þau voru fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2006 er að finna í skjölum neðar á vefsíðunni.


Sveitarfélag


Garðabær


Garðabær sameinaðist Sveitafélaginu Álftanesi 1. janúar 2013


Sveitarfélagið Álftanes
Sveitafélagið Álftanes sameinaðist Garðabæ 1.jan.2013