Skip to content

Changes

View changes from to


On June 7, 2023 at 1:16:19 PM UTC, Gravatar ckan_admin:
  • Updated description of Áfengis og vímuefnaneysla to

    Gagnapakkinn inniheldur hlutfall áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna og fullorðinna í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Gögn um ungmenni eru byggð á könnun meðal ungmenna á Íslandi frá Rannsóknir og greining. Gögn um fullorðna er frá Embætti landlæknis - Heilsa og líðan vöktun fyrir Reykjavík. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2012-2018. 
 
 Hver lína í gagnaskránum táknar hlutfall nema (í 8.-10. bekk, 10. bekk og framhaldsskólanema) sem falla undir skilgreiningu ölvunardrykkju, hlutfall grunnskólanema (í 8.-10. bekk) sem hafa neytt marijúana og hlutfall áhættudrykkju fullorðinna fyrir hvert svæði á ákveðnu ári. 
 
 Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji dálkur inniheldur hlutfall grunnskólanema (í 8.-10. bekk) sem falla undir skilgreiningu ölvunardrykkju - þar sem 0,03 táknar að 3% barna í 8.-10. bekk hafa orðið ölvaðir sl. 30 daga. Fjórði dálkur inniheldur hlutfall ölvunardrykkju grunnskólanema (í 10. bekk), fimmti dálkur inniheldur hlutfall grunnskólanema (í 8.-10. bekk) sem hafa neytt marijúana, sjötti dálkur inniheldur hlutfall ölvunardrykkju framhaldsskólanema og sjöundi dálkur inniheldur hlutfall áhættudrykkju fullorðinna - þar sem 0,102 þýðir að 10,2% fullorðinna falla undir þá skilgreiningu að vera með áhættusamt neyslumynstur þegar kemur að ölvunardrykkju. 
 
 Skýringar: 
 _Hlutfall ungmenna sem hafa orðið ölvaðir sl.30 daga._ 
 _Hlutfall ungmenna sem hafa notað marijúana 1x eða oftar á ævi._ 
 _Hlutfall fullorðinna sem fellur undir þá skilgreiningu að vera með áhættusamt neyslumynstur._ 



  • Uploaded a new file to resource Áfengis og vímuefnaneysla in Áfengis og vímuefnaneysla