Íbúafjöldi í Reykjavík, höfuðborgarsvæðinu og landsins alls

Gagnapakkinn byggir á tölum frá Hagstofu Íslands um íbúafjölda á Íslandi frá 1901-2021. Í honum er að finna tölur um íbúafjölda og hlutfallsbreytingu í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og á landinu öllu. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1901-2021.


Hver lína í gagnaskránum táknar íbúafjölda og hlutfallsbreytingu íbúafjölda á milli ára á ákveðnu ári á tilteknu svæði.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar inniheldur svæði(skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og allt landið), þriðji dálkur inniheldur íbúafjölda. Fjórði dálkur inniheldur hlutfallslega breytingu íbúafjölda á milli ára þar sem 0,089 er 8,9%.

Tölur fyrir árin 1901-1990 eru úr Hagskinnu.
Tölur um íbúa í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og á Íslandi 1901-1997, miðast við 1. desember ár hvert.
Tölur um íbúa í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og á Íslandi, 1998 og síðar miðast við 1. janúar ár hvert.
Tölur um íbúa Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins 1998-2013, miðast við sveitarfélagaskipan 1. janúar 2013.

Data and Resources

Additional Info

Field Value
Last Updated June 14, 2023, 12:43 (UTC)
Created May 26, 2023, 10:54 (UTC)