Fjöldi lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu og á landinu öllu

Gagnapakkinn inniheldur fjölda lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Gögnin eru byggð á ársskýrslu ríkislögreglustjóra og Hagstofu Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2002-2019.

Hver lína í gagnaskránum táknar fjölda lögreglumanna fyrir hvert svæði á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji dálkur inniheldur fjölda yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna og fjórði dálkur inniheldur fjölda aðalvarðastjóra, varðstjóra, lögreglufulltrúa og rannsóknarlögreglumenn. Fimmti dálkur inniheldur fjölda lögreglumanna, sjötti dálkur inniheldur fjölda menntaðara lögreglumanna og sjöundi dálkur inniheldur fjölda afleysingarmanna. Áttundi dálkur inniheldur heildarfjölda lögreglumanna, níundi dálkur inniheldur fjölda héraðslögreglumanna og tíundi dálkur inniheldur fjölda lögreglunema. Ellefti dálkur inniheldur heildarfjölda dálka á undan og tólfi dálkur inniheldur fjölda lögreglumanna á 10 þúsund íbúa - alls lögreglumenn. Þrettándi dálkur inniheldur fjölda lögreglumanna á 10 þúsund íbúa - alls með héraðslögreglumönnum og fjórtándi dálkur inniheldur meðalmannfjölda.

Skýringar:
Fjöldi lögreglumanna 1. febrúar 2009-2019.
Frá 1988 tekur umdæmi Lögreglunnar í Reykjavík til Reykjavíkur, Kjalarness, Kjóss, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness, en árið 2007 varð allt höfuðborgarsvæðið að einu lögregluembætti.
Héraðslögreglumenn gegna almennum löggæslustörfum þegar á þarf að halda undir stjórn lögreglumanna og eru ekki í fullu starfi.
Meðalmannfjöldi: Meðalmannfjöldinn er reiknaður sem einfalt meðaltal tveggja talna 1. janúar hvers árs og 1. janúar þess næsta.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 14:59 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 10:33 (UTC)