Íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eftir herbergjafjölda og sveitarfélögum

Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eftir sveitarfélögum og herbergjafjölda. Gögnin eru byggð á fasteignamati ríkisins, frá Þjóðskrá Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2001-2011.

Hver lína táknar fjölda íbúða fyrir sérhvern herbergjafjölda fyrir hvert sveitarfélag á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur sveitarfélag (t.d. Reykjavík, Kópavogur og Mosfellsbær) og þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda íbúða á höfuborgarsvæðinu. Fjórði til níundi dálkur innihalda fjölda íbúða eftir herbergjafjölda (1-2 herbergi, 3 herbergi, 4 herbergi, 5 herbergi, 6 herbergi og fleiri og óþekktur herbergjafjöldi).


Skýringar:
31. desember ár hvert.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 14:08 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 11:54 (UTC)