Íbúðir í Reykjavík eftir hverfum og herbergjafjölda

Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um íbúðir í Reykjavík eftir hverfum og herbergjafjölda. Gögnin eru byggð á fasteignamati ríkisins, frá Þjóðskrá Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2001-2017.

Hver lína táknar fjölda íbúða eftir herbergjafjölda fyrir hvern borgarhluta á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur borgarhluta (t.d. Árbær, Grafarholt, Vesturbær og Kjalarnes) og þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda íbúða í Reykjavík. Fjórði dálkur inniheldur fjölda 1-2 herbergja íbúða. Fimmti til níundi dálkur innihalda fjölda íbúða eftir mismunandi herbergjafjölda (3 herbergja, 4 herbergja, 5 herbergja, 6 herbergja og fleiri og óþekktur).


Skýringar:
31. desember ár hvert.

Norðlingaholtið talið með Árbænum og Úlfarsárdalurinn talinn með Grafarholtinu, 2008-2011.

Árbær: Norðlingaholtið talið með Árbænum 2008 síðar.

Grafarholt: Úlfarsárdalurinn talinn með Grafarholtinu 2008 og síðar.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 14:04 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 11:59 (UTC)