Íbúðir í Reykjavík eftir hverfum og húsagerð

Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um íbúðir í Reykjavík eftir hverfum og húsagerð. Gögnin eru byggð á fasteignamati ríkisins, frá Þjóðskrá Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2001-2017.

Hver lína táknar fjölda íbúða eftir húsagerð fyrir hvern borgarhluta á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur borgarhluta (t.d. Árbær, Grafarholt, Vesturbær og Kjalarnes) og þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda íbúða í Reykjavík. Fjórði dálkur inniheldur fjölda einbýla (1 íbúð), fimmti dálkur inniheldur fjölda sambýla (2-5 íbúðir), sjötti dálkur inniheldur fjölda fjöldbýla (6 íbúðir og fleiri) og sjöundi dálkur inniheldur fjölda annarra íbúða.

Skýringar:
31. desember ár hvert.

Norðlingaholtið talið með Árbænum og Úlfarsárdalurinn talinn með Grafarholtinu (2009-2011).

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 14:05 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 12:01 (UTC)