Líkamleg og andleg heilsa fullorðinna

Gagnapakkinn inniheldur hlutfall fullorðinna þar sem líkamleg heilsa er sæmileg/léleg og hlutfall fullorðinna þar sem andleg heilsa er sæmileg/léleg í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Gögnin eru byggð á gögnum frá Embætti landlæknis - Heilsa og líðan og vöktun fyrir Reykjavík. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2012-2017.

Hver lína í gagnaskránum táknar hlutfall fullorðinna með sæmilega/lélega líkamlega heilsu og hlutfall fullorðinna með sæmilega/lélega andlega heilsu fyrir hvert svæði á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji dálkur inniheldur hlutfall fullorðinna þar sem líkamleg heilsa er sæmileg/léleg - þar sem 0,197 er 19,7% fullorðinna með sæmilega/lélega líkamlega heilsu. Fjórði dálkur inniheldur hlutfall fullorðinna þar sem andleg heilsa er sæmileg/léleg.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 7, 2023, 14:11 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 13:48 (UTC)