Loftmengun í Reykjavík, mælingar frá Grensásvegi

Gagnapakkinn inniheldur tölur um loftmengun í Reykjavík, mælingar frá Grensásvegi. Gögnin eru frá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1994-2016.

Hver lína táknar fjölda gilda, styrk (µg/m3) og fjölda gilda yfir ákveðnum viðmiðunarmörkum fyrir hvert efni á ákveðnu ári.

Skýringar:

Miðað er við 24 klukkustunda meðaltal samkvæmt reglugerð (nr. 920/2016) um brennisteinsdíoxíð, köfnunarefnisdíoxíð og köfnunarefnisoxíð, bensen,kolsýring, svifryk og blý í andrúmsloftinu, styrk ósons við yfirborð jarðarog um upplýsingar til almennings.

Niturdíoxíð NO2: Það eru bæði mörk fyrir klukkustundir (200) og 24-tíma (75) fyrir Niturdíoxíð N02.

Kolmónoxíð CO: Daglegt hámarksmeðaltal fyrir Kolmónoxíð CO er fyrir 8 klst.

Óson O3: mörkin fyrir Óson O3 eru annarsvegar upplýsingamörk sem er með 180 µg/m3 og hinsvegar viðvörunarmörk sem er 240 µg/m3.

Brennisteinsdíoxíð SO2: Fyrir Brennisteinsdíoxíð SO2 eru bæði mörk fyrir klukkustundir (350) og 24 klst (125).

Svifryk PM10: Heilsuverndarmörk fyrir Svifryk PM10 er 50 µg/m3 fyrir 24 tíma, leyfilegt er að fara 35x yfir það á hverju ári. Mörkin fyrir ársmeðaltalið er 40 µg/m3.

Brennisteinsvetni H2S: Heilsuverndarmörk fyrir Brennisteinsvetni H2S er 50 µg/m3 fyrir 24 tíma, mörkin fyrir ársmeðaltalið er 5 µg/m3.

Árið 2010: Ósonmælingar voru ekki gerðar 2010.

Árið 2016: Ósonmælingar voru óáreiðanlegar árið 2016 og unnið er að lagfæringum við mælingar.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 18:09 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 12:45 (UTC)