Nemendur á háskólastigi í Reykjavík og á landinu öllu eftir námsbrautum og kyni

Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um nemendur á háskólastigi í Reykjavík og á landinu öllu eftir námsbrautum og kyni. Gögnin eru frá Hagstofu Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2007-2014.

Hver lína táknar fjölda nemenda á háskólastigi í Reykjavík og á landinu öllu á mismunandi námsbrautum fyrir hvert svæði og hvert kyn á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í höfuðborgarsvæðið án Rvk, Reykjavík og landið allt) og þriðji dálkur inniheldur kyn (sem skiptist upp í karlar, konur og alls). Fjórði til tólfti dálkur innihalda fjölda nemenda fyrir sérhverja námsbraut (landbúnaður/matvælafræði, listir, lækningar/heilbrigðisgreinar, náttúrufræði/stærðfræði, samfélagsvísindi/lögfræði, tungumál/mannvísindi, tæknigrænar/verkfræði, uppeldisfræði/kennaranám og viðskipta- og hagfræði. Þrettándi dálkur inniheldur heildarfjölda nemenda á háskólastigi.

Skýringar:
Tölur um skráða nemendur eru ekki að öllu leyti sambærilegar við endanlegar tölur úr nemendaskrá Hagstofunnar. Í ofangreindum tölum eru nemendur sem stunda nám í tveimur skólum, í bæði dagskóla og kvöldskóla eða á tveimur námsbrautum tvítaldir en í nemendaskrá Hagstofunnar er hver nemandi aðeins talinn einu sinni.

Árið 2007: Tvítalningar í tölum um nemendur á háskóla- og doktorsstigi eru um 1,1%.

Árið 2008: Tvítalningar í tölum um nemendur á háskóla- og doktorsstigi eru um 1,1%.

Árið 2009: Tvítalningar í tölum um nemendur á háskóla- og doktorsstigi eru um 1,2%.

Árið 2010: Tvítalningar í tölum um nemendur á háskóla- og doktorsstigi eru um 1,5%.

Árið 2011: Tvítalningar í tölum um nemendur á háskóla- og doktorsstigi eru um 1,1%.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 16:52 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 13:54 (UTC)