Nemendur í grunnskólum Reykjavíkur eftir bekkjum og aldri

Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um nemendur í grunnskólum Reykjavíkur eftir bekkjum og aldri. Gögnin eru frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1999-2018.

Hver lína táknar fjölda nemenda í grunnskólum Reykjavíkur eftir bekkjum og aldri fyrir hvert skólaár á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur skólaár (t.d. 1998-1999) og þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda nemenda í grunnskólum Reykjavíkur. Fjórði til þrettándi dálkur innihalda fjölda nemenda eftir bekkjum og aldri (t.d. fjöldi nemenda í 1.bekk, 6 ára og fjöldi nemenda í 6. bekk, 11 ára).

Skýringar:
Nemendur 17. nóvember 2008 og 1. október 2009-2011.
5 ára nemendur í sjálfstætt starfandi skólum eru ekki meðtaldir.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 16:36 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 13:33 (UTC)