Nemendur í skólum á háskólastigi í Reykjavík eftir kyni og kennsluformi

Gagnapakkinn inniheldur fjöldatölur um nemendur í skólum á háskólastigi í Reykjavík eftir kyni og kennsluformi. Gögnin eru frá Hagstofu Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2001-2014.

Hver lína táknar fjölda nemenda á háskólastigi í Reykjavík eftir kyni og kennsluformi fyrir hvern skóla á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur skóla (t.d. Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands) og þriðji dálkur inniheldur heildarfjölda nemenda á háskólagstigi. Fjórði dálkur inniheldur fjölda karla á háskólastigi í Reykjavík og fimmti dálkur inniheldur fjölda kvenna. Sjötti dálkur inniheldur fjölda nemenda í dagskóla, sjöundi dálkur inniheldur fjölda nemenda í kvöldskóla og áttundi dálkur inniheldur fjölda nemenda í fjarnámi.

Skýringar:
Tölur um fjölda skráðra nemenda eru ekki að öllu leyti sambærilegar við endanlegar tölur úr nemendaskrá Hagstofunnar. Í ofangreindum tölum eru nemendur sem stunda nám í tveimur skólum, í bæði dagskóla og kvöldskóla eða á tveimur námsbrautum tvítaldir en í nemendaskrá Hagstofunnar er hver nemandi aðeins talinn einu sinni. Í sumum skólum er aðeins um hluta nemenda að ræða þar sem einungis er safnað upplýsingum um nemendur á framhaldsskóla- eða háskólastigi og nemendur í viðurkenndu námi.

Kennaraháskóli Íslands: Sameinaðist Háskóla Íslands árið 2008.

Tækniháskóli Íslands: Sameinaðist Háskólanum í Reykjavík árið 2005.

Árið 2004: Haustið 2004 reyndust um 2% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Árið 2005: Haustið 2005 reyndust um 2,5% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Árið 2006: Haustið 2006 reyndust um 2,2% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Árið 2007: Haustið 2007 reyndust um 1,1% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Árið 2008: Haustið 2008 reyndust um 1,1% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Árið 2009: Haustið 2009 reyndust um 1,2% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Árið 2010: Haustið 2010 reyndust um 1,5% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Árið 2011: Haustið 2011 reyndust um 1,1% nemenda vera tvískráðir í tölum um skráða nemendur á háskólastigi.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 16:52 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 13:56 (UTC)