Nemendur og kennarar í grunnskólum Reykjavíkur

Gagnapakkinn inniheldur fjölda nemenda og kennara í grunnskólum Reykjavíkur. Gögnin eru frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1998-2018.

Hver lína táknar fjölda nemenda og kennara í grunnskólum Reykjavíkur fyrir hvert skólaár á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár og annar dálkur inniheldur skólaár (t.d. 1998-1999). Þriðji dálkur inniheldur fjölda nemenda, fjórði dálkur inniheldur fjölda kennara, fimmti dálkur inniheldur meðalfjölda nemenda í bekkjadeild og sjötti dálkur inniheldur fjölda nemenda á kennara.

Skýringar:
Tölur frá hausti hvers árs.
Nemenda í almennum grunnskólum og sérskólum á vegum Reykjavíkurborgar. Sjálfstætt starfandi skólar eru ekki taldir með.
Skólaár 2012-2013: Árið 2012 eru starfsmannatölur fyrir Ártúnsskóla, Dalskóla, Fellaskóla, Klébergsskóla, Norðlingaskóla og Kvarnarborg taldar með samreknum stofnunum.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 16:35 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 13:33 (UTC)