Neysla grænmetis og ávaxta og tannburstun

Gagnapakkinn inniheldur hlutfall neyslu grænmetis og ávaxta, og tannburstun fullorðinna í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Gögnin eru frá Embætti landslæknis. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2016-2018.

Hver lína í gagnaskránum táknar hlutfall grænmetis- og ávaxtaneyslu fullorðinna og hlutfall fullorðinna sem tannbursta 2x á dag eða oftar fyrir hvert svæði á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji dálkur inniheldur hlutfall fullorðinna sem borðar grænmeti 5x á dag eða oftar - þar sem 0,107 er 10,7%. Fjórði dálkur inniheldur hlutfall fullorðinna sem bursta tennurnar 2x á dag eða oftar.

Skýringar:
Grænmetis og ávaxtaneysla: Hlutfall fullorðinna sem borðar grænmeti og ávexti 5x á dag eða oftar.
Tannburstun: Hlutfall fullorðinna sem bursta tennurnar 2x á dag eða oftar.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 7, 2023, 13:21 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 13:53 (UTC)