Reykingar og rafrettunotkun

Gagnapakkinn inniheldur hlutfall reykingar og rafrettunotkunar íbúa í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Gögn um reykingar fullorðinna eru frá Embætti landlæknis. Gögn um ungmenni eru byggð á könnun meðal ungmenna á Íslandi frá Rannsóknir og greining. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2016-2018.

Hver lína í gagnaskránum táknar hlutfall grunnskólanema (í 8.-10. bekk) og framhaldsskólanema sem hafa reykt rafrettu, og hlutfall fullorðinna sem reykja daglega fyrir hvert svæði á ákveðnu ári.

Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji dálkur inniheldur hlutfall grunnskólanema í 8.-10. bekk sem hafa reykt rafrettu 1x eða oftar á ævinni - þar sem 0,203 er 20,3%. Fjórði dálkur inniheldur hlutfall framhaldsskólanema sem hafa reykt rafrettu 1x eða oftar á sl. 30 dögum og fimmti dálkur inniheldur hlutfall fullorðinna sem reykja daglega.

Skýringar:
Hlutfall 8.-10.bekk sem hafa reykt rafrettur 1 x eða oftar á ævi.
Hlutfall framhaldsskólanema sem hafa reykt rafrettur 1x eða oftar á sl. 30 dögum.
Hlutfall fullorðinna sem reykja daglega.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 7, 2023, 12:46 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 13:54 (UTC)