Gagnapakkinn inniheldur árlegar tölur um fjölda og hlutfall notenda á almennum leigumarkaði sem fengu sérstakar húsaleigubætur, skipt eftir þjónustumiðstöð og atvinnustöðu. Hlutfallstalan sýnir fjölda notenda í tiltekinni atvinnustöðu sem brot af heildarfjölda notenda þess árs fyrir hverja þjónustumiðstöð. Þannig getum við sem dæmi séð að af öllum þeim á almennum leigumarkaði sem fengu sérstakar húsaleigubætur í Vesturbæ árið 2012 voru 30,3% (0,303) atvinnulaus.




Gögnin eru upprunnin hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, 2012-2016.