Gagnapakkinn inniheldur árlegar tölur um fjölda og hlutfall notenda í húsnæði Félagsbústaða sem fengu sérstakar húsaleigubætur, skipt eftir fjölskyldugerð og tegund íbúðar. Hlutfallstalan sýnir fjölda notenda í tiltekinni fjölskyldugerð sem brot af heildarfjölda notenda þess árs alls fyrir hverja tegund íbúðar. Þannig getum við sem dæmi séð að af öllum í félagslegri leiguíbúð á vegum Félagsbústaða sem fengu sérstakar húsaleigubætur árið 2012 voru 32,6% (0,326) einhleypir karlmenn.




Gögnin eru upprunnin hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, 2012-2016.