Sérstakar húsaleigubætur í húsnæði Félagsbústaða, skertar eða óskertar bætur og tegund íbúðar

Gagnapakkinn inniheldur árlegar tölur um fjölda og hlutfall notenda í húsnæði Félagsbústaða sem fengu sérstakar húsaleigubætur, skipt eftir tegund íbúðar og því hvort um sé að ræða skertar eða óskertar bætur. Hlutfallstalan sýnir fjölda notenda í tilteknum skerðingarflokki sem brot af heildarfjölda notenda þess árs alls fyrir hverja tegund íbúðar. Þannig getum við sem dæmi séð að af öllum í félagsbústað sem fengu sérstakar húsaleigubætur árið 2012 voru 83,8% (0,838) með óskertar bætur.

Gögnin eru upprunnin hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, 2012-2016.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 17:24 (UTC)
Stofnað maí 26, 2023, 13:07 (UTC)