Verð íbúða í sérbýli í Reykjavík

Gagnapakkinn inniheldur fjölda samninga og verð íbúða í sérbýli í Reykjavík. Gögnin eru frá Þjóðskrá Íslands og Hagstofu Íslands. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 1990-2017.

Hver lína táknar fjölda samninga og staðgreiðsluverð íbúða (á fermetra) fyrir mismunandi stærðir sérbýla í Reykjavík á ákveðnu ári.

Skýringar:
Útreikningar fasteignaverðs byggja á völdu úrtaki kaupsamninga sem gerðir voru á viðkomandi tímabili. Samningar milli skyldra aðila eða þar sem upplýsingar eru ófullkomnar eru ekki teknir með í úrtakið. Fjöldi samninga vísar til fjölda kaupsamninga sem falla í þetta úrtak. Staðgreiðsluverð merkir kaupverð ef það væri allt greitt út í hönd á kaupdegi, reiknað út frá greiðslutilhögun og yfirteknum lánum.
Fjöldi fermetra: Á föstu verði 2013 - miðað við byggingarvísitölu.

Gögn og tilföng

Viðbótarupplýsingar

Svæði Gildi
Síðast uppfært júní 14, 2023, 14:12 (UTC)
Stofnað maí 30, 2023, 12:07 (UTC)