Skip to content

Changes

View changes from to


On June 6, 2023 at 1:35:15 PM UTC, Gravatar ckan_admin:
  • Updated description of Svefn to

    Gagnapakkinn inniheldur hlutfall þeirra sem fá stuttan svefn í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Hér er að finna eina heildarskrá fyrir öll árin, auk sér skráa fyrir hvert ár, frá 2016-2018. Stuttur svefn er skilgreindur sem hlutfall ungmenna sem sofa 7 klst á nóttu eða minna og hlutfall fullorðinna sem sofa 6 klst á nóttu eða minna. 
 
 Hver lína í gagnaskránum táknar hlutfall þeirra sem fá stuttan svefn í 8.-10. bekk, hlutfall framhaldsskólanema sem fá stuttan svefn og hlutfall fullorðinna sem fá stuttan svefn fyrir hvert svæði á ákveðnu ári. 
 
 Fyrsti dálkurinn inniheldur ár, annar dálkur inniheldur svæði (sem skiptist upp í Reykjavík, höfuðborgarsvæðið og landið allt), þriðji dálkur inniheldur hlutfall þeirra sem fá stuttan svefn í 8.-10. bekk - þar sem 0,429 er 42,9%. Fjórði dálkur inniheldur hlutfall framhaldsskólanema sem fá stuttan svefn og fimmti dálkur inniheldur hlutfall fullorðinna sem fá stuttan svefn.